Fara í efni

Orka náttúrunnar - ON Hleðslustöðvar

Orka náttúrunnar (ON) býður upp á eitt þéttasta og áreiðanlegasta net hleðslustöðva á Íslandi. Hleðslustöðvar ON má finna um allt land – við fjölfarna ferðamannastaði, vinsæla þjónustu eins og sundlaugar, veitingastaði og verslanir, auk útivistarsvæða þar sem hægt er að njóta umhverfisins á meðan bíllinn hleðst.

Við bjóðum upp á tvær tegundir hleðslustöðva:

  • Hraðhleðslustöðvar (DC) – fyrir þá sem vilja hlaða hratt og halda áfram ferðinni innan skamms.
  • Hverfahleðslustöðvar (AC) – hentugar þegar dvölin er lengri, t.d. á meðan gestir borða, baða sig eða skoða sig um.


Hægt er að hlaða á öllum stöðvum ON með:

Hægt er að finna næstu hleðslustöð á hleðslukorti ON þar sem all ar stöðvar eru merktar með upplýsingum um hraða, fjölda tengja, staðsetningu og verð.

Þjónustuver ON er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins, og starfsfólk okkar er alltaf tilbúið að aðstoða þig ef þú þarft hjálp við hleðslu eða upplýsingar um næstu stöð.

Hvað er í boði