Gamla flugfélagið
Old airline er lítið fjölskyldurekið gistiheimili staðsett í hjarta miðbæjar Hafnar í Hornafirði og er í göngufæri við verslun, sundlaug og veitingastaði. Gistiheimilið er á tveimur hæðum og er með 5 fullbúin herbergi sem rúma 10-12 manns. Boðið er upp á fullbúið eldhús og góða setustofu með sjónvarpi. Það eru 2 baðherbergi ásamt aðgengi að þvottavél og þurrkara. Gestir hafa sér afgirtan garð með verönd og útigrilli. Old airline er tilvalinn staður fyrir stórfjölskylduna til að koma og njóta Hafnar í Hornafirði og náttúrufegurðarinnar sem er að finna við Vatnajökul. Lágmarksleiga er tvær nætur eða eftir samkomulagi Hafið endilega samband – okkur er ekkert ljúfara en að fylla litla húsið okkar af lífi!