Fara í efni

Nordic Holidays ehf.

Markmið Nordic Holidays er að tengja saman í gegmum netið kaupendur og seljendur ferðaþjónustu. Nordic Holidays selur enga þjónustu til ferðamanna og er því óháður milliliður seljenda og kaupenda.

Nordic Holidays ehf á og rekur 30 ferðatengda vefi sem fá um 3 milljónir erlendra heimsókna á ári. Þegar erlendir ferðamenn leita eftir gisting, bílaleigu eða hverskonar afþreyingu á netinu koma einhverjir af vefum Nordic Holidays upp í 10 efstu sætum á leitarvélum. Stærsti vefurinn í safninu er www.randburg.com, stofnaður 1994, en sá vefur fær um 2 milljónir heimsókna á ári.

Nordic Holidays býður seljendum ferðaþjónustu tvær meginleiðir til að auka viðskipti sín:

Skráning
Seljendur ferðaþjónustu geta skráð fyrirtækið sitt á skráningarvefum (www.randburg.comwww.travelnet.iswww.infoiceland.iswww.exploreiceland.is) með eigin undirsíðu sem er „leitavélabestuð“ til að auka sýnileika hennar. Undirsíðan er einnig með tengingu á heimasíðu auglýsingataka en slík tenging við öflugt safn vefa veldur því að sýnileiki heimasíðunnar eykst til muna.

Auglýsingar og undirsíður
Seljendur ferðaþjónustu geta keypt auglýsingaborða á vefum Nordic Holidays sem vísa beint inn á heimasíðu auglýsingataka.

Bókunarþjónusta
Á mörgum af vefum Nordic Holidays eru bókunarvélar þar sem kaupendur ferðaþjónustu geta bókað þjónustu og greitt. Flestir ferðamenn í kauphugleiðingum á netinu sjá einhvern vef Nordic Holidays og eru bókunarvélarnarnar því mjög sýnilegar og mikið notaðar.

Gerður er þjónustusamningur um auglýsingar til eins árs í senn og er samið um gjald við hvern og einn viðskiptavin. Gjald er venjulega í formi hlutdeildar af sölu.

Hægt er að nálgast sölusíður Nordic Holidays hér að neðan:

www.carrentalsiniceland.com
www.cheapcarrentaliceland.com
www.campersiniceland.com
www.icelandontheweb.com

Gerður er þjónustusamningur um auglýsingar til eins árs í senn og er samið um gjald við hvern og einn viðskiptavin. Gjald er venjulega í formi hlutdeildar af sölu.

Hvað er í boði