Mývatnsmaraþon
Mývatnsmaraþon er haldið fyrsta laugardag í júní.
Hlaupið er í kringum Mývatn, sem er þekkt fyrir náttúrulega fegurð, yfirborð vegarins er malbikað. Hér er hægt að sjá kort af hlaupaleið
Keppni í öllum vegalengdum fer fram á sama degi, og tímasetningar eru eftirfarandi:
- 12:00 Maraþon hefst
- 13:00 ½ maraþon hefst
- 14:00 10 km og 3 km hlaup hefst
- 17:00 Verðlaunaafhending hefst
Sveitakeppni
Sveitakeppni í öllum vegalengdum nema 3 km. Sveitakeppnin er opinn flokkur og er hámark 5 í hverjum flokki en 3 bestu tímarnir gilda.
Verðlaun og annað
Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapening, stuttermabol merktan hlaupinu, grillveislu og ókeypis í jarðböðin við Mývatn. Einnig verða veitt sérstök útdráttarverðlaun.
Upplýsingar
Upplýsingar í síma 464 4390. Tengiliður: Guðrún Brynleifsdóttir, e-mail: marathon@visitmyvatn.is
Forskráning er á hlaup.is
Flokkaskipting
Maraþon
- Konur og karlar 18-39 ára
- Konur og karlar 40-49 ára
- Konur og karlar 50-59 ára
- Konur og karlar 60 ára og eldri
Hálfmaraþon
- Konur og karlar 16-39 ára
- Konur og karlar 40-49 ára
- Konur og karlar 50-59 ára
- Konur og karlar 60 ára og eldri
10 km
- Konur og karlar 12-17 ára
- Konur og karlar 18-39 ára
- Konur og karlar 40-49 ára
- Konur og karlar 50-59 ára
- Konur og karlar 60 ára og eldri
3 km
- Konur og karlar 15 ára og yngri
- Konur og karlar 16 ára og eldri