Fara í efni

Múlakaffi

Múlakaffi var stofnað árið 1962 og er óhætt að segja að fyrirtækið sé rótgróið fjölskyldufyrirtæki.  Í dag rekur Múlakaffi eina stærstu veisluþjónustu landsins þar sem stöðugt er leitast við að fara ótroðnar slóðir  til þess að koma viðskiptavinum okkar á óvart.  

Veitingastaðurinn Múlakaffi er hjarta fyrirtækisins og er staðsettur í Hallarmúla.  Múlakaffi býður upp á heimilislegan íslenskan mat: "Eins og maturinn heima hjá mömmu". 

Fyrirtækjaþjónustan er stór hluti af rekstrinum enda hafa ófá íslensk fyrirtæki verið  í áskrift hjá okkur í áratugi, hvort sem um ræðir nokkra matarskammta á dag eða heildarumsjón með veitingarekstur og starfsmannahald.  

Hvað er í boði