Fara í efni

Melar Gistiheimili

Gistiheimilið Melar er opið allt árið.

Gistiheimilið Melar er fjölskyldurekið gistiheimili á Kópaskeri, litlu þorpi í Öxarfirði norðan við norðurheimskautsbaug. Húsið, sem er eitt elsta íbúðarhús þorpsins, hefur verið endurnýjað frá grunni, en það var upphaflega byggt árið 1930.

Gisting er í boði í fjórum herbergjum með sameiginlegu salerni á þriðju hæð hússins, sem er efsta hæð hússins. Herbergin fjögur á efstu hæðinni eru af mismunandi stærðum. Á annarri hæð, þar sem gengið er inn í gistiheimilið, er rúmgott sameiginlegt rými með fullbúnu eldhúsi, stofu og baðherbergi.

Húsið rúmar 7-9 manns samtals (7 fullorðnir, 2 börn uppi á svefnlofti) og er tilvalið fyrir stærri sem og minni hópa.

Dýnur og barnarúm eru í boði.

Nánari lýsing á www.melarguesthouse.is

Við höfum nefnt herbergin eftir uppáhalds fuglum okkar; Jaðrakan, kría, lómur og rjúpa. Allir þessir fuglar má sjá á svæðinu í kringum Kópasker á sumrin.

Við hliðina á Melar gistiheimilinu eru tveir heitir pottar, Bakkaböðin, þar sem gestir geta slakað á í pottunum og synt í sjónum. Frá pottunum er hægt að ganga niður á fallega sandströnd með þéttum svörtum sandi, þar sem hægt er að synda örugglega í sjónum.

Þorpið Kópasker er í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Húsavík, um 37 km frá Ásbyrgi og 60 km frá Dettifossi. Kópasker er hluti af Norðurstrandarleiðinni, sem nýtur vaxandi athygli ferðamanna sem kjósa að ferðast og upplifa fáfarnar slóðir á norðurhluta Íslands. Svæðið er einstakt hvað varðar fjölbreytni fuglalífs og þar er fuglaskoðunarhús.

Í stuttum bíltúr frá Kópaskeri má keyra að heimskautsbaugnum, heimsækja Raufarhöfn (45 km) með sitt Norðurheimskautsgerði og skoða strendurnar og fuglalífið á Melrakkasléttunni. Þú getur líka notið norðurljósanna við bestu mögulegu aðstæður á gistiheimilinu

Hvað er í boði

Bakkaböðin geothermal hot tubs

In the peaceful village of Kópasker you’ll find one of Icelands best-kept secrets; naturally heated hot tubs with stunning views over Öxarfjörður.

Bakkaböðin has an old fashioned feeling to it “Gamaldags”, where guests can soak and swim in the sea. From the tubs you can walk down to a beautiful sandy beach with black sand...where you can access the shallow sea for safe sea swimming.

Whether you’re ending a long day of exploring or simply seeking calm, Bakkaböðin offers the perfect escape. A community gem, the hot tubs are a favorite amongst locals and travellers alike.

Enjoy the peaceful atmosphere that makes Kópasker special.

Bring your swimsuit and towel…the rest is pure relaxation.

About us

● Open all year - daily from June 17 - 30 August

● 10.00-20.00

● *Other times of year please call at least 1hr ahead

● Groups by arrangement

● Showers and changing rooms available

Bakkaböðin á Kópaskeri

Í friðsæla þorpinu Kópaskeri finnur þú eitt best geymda leyndarmál Íslands: tvo potta með heitu vatni með stórkostlegt útsýni yfir Öxarfjörð.

Bakkaböðin hafa “gamaldags stíl” og frá pottunum getur þú gengið niður í fallega fjöru þar sem gestir geta legið eða synt í sjónum.

Hvort sem þú ert að ljúka löngum skoðunar degi eða einfaldlega að leita að ró, þá eru Bakkaböðin fullkominn staður til að slaka á. Bakkaböðin eru ein af perlu staðarins og vinsæl meðal heima- og ferðamann.

Njóttu friðsældarinnar sem gerir Kópasker einstakt.

Taktu með þér sundföt og handklæði - restin er hrein slökun.

● Opið allt árið - alla daga frá 17.júní - 30.ágúst

● 10.00-20.00

● *Á öðrum tímum árs vinsamlegast hafið sambandi með að minnsta

kosti klukkustundar fyrirvara.

● Hópar eftir samkomulagi

● Sturtur og búningsklefar í boði