Lambi - Ferðafél. Akureyrar/FÍ
Skálinn Lambi stendur í Glerárdal suðvestan Akureyrar, byggður 2014. Frá vegi að skálanum er stikuð gönguleið, 11 km. Þar eru góðir stígar mest alla leið, nokkrar göngubrýr yfir mýrlendi. Göngufólk þarf að athuga að engin brú er yfir Glerána við skálann.
Ef farið er að vetri til þarf fólk að skoða vel veðurspá og kynna sér upplýsingar um ferðir í Lamba að vetri til. Upplýsingar um vetrarferðir í Lamba má nálgast hér.
Skálinn er 44.4m² að grunnfleti og auk þess er 19.3 m² verönd sólarmegin við húsið. Þar er gistirými fyrir 16 manns, svefnpokapláss í kojum. Í skálanum eru eldhúsáhöld, sólóvél og gashella. Lækur er skammt frá sunnan skálans þangað sem vatn er sótt. Kamar. Forstofa er ólæst en innri skálinn er læstur svo panta þarf gistingu.
Fjölbreyttar gönguleiðir frá skálanum um fjöll og dali á Glerárdalssvæðinu. Sjá gönguleiðakort FFA: Glerárdalur, þar eru góðar lýsingar á miserfiðum gönguleiðum frá Lamba. Kortið er hægt að fá keypt á skrifstofu FFA. Einnig er bent á bókina Fjallgönguleiðir um Glerárdal sem FÍ gaf út og fæst einnig á skrifstofu FFA eða í netverslun FÍ.
Forstofa er opin en innri skálinn er læstur svo panta þarf gistingu á skrifstofu FFA, ffa@ffa.is eða í síma 462 2720.
GPS: N65°34,88 W18°17,77