Fara í efni

Kopar Restaurant

Við á Kopar leggjum áherslu á staðbundið hráefni og leitum jafnt til lands og sjávar í samsetningu á matseðli okkar.

Sérstaða Kopars felst í spennandi hráefni og fjölbreyttum réttum. Á matseðlinum mætast nýjar og gamlar aðferðir og uppskriftir, hefðbundið hráefni og óvænt. Brasserie-réttir Kopars veita gestum tækifæri til að kanna matarheiminn á einni kvöldstund á sanngjörnu verði. Brasserie-réttirnir eru smáréttir, gómsæt viðbót við hefðbundna forrétti, aðalrétti og eftirrétti.

Ferskt og kraftmikið andrúmsloft hafnarinnar er hluti af upplifuninni þegar þú borðar á Kopar.

Hvað er í boði