Fara í efni

Kompaní Events

Kompaní Events, áður Eskimos Events, var stofnað árið 2000 til að mæta ört vaxandi eftirspurn eftir ferðaskipulagi og viðburðastjórnun á Íslandi. Við leggjum metnað í að skipuleggja ferðir, sjá um viðburðarstjórnun og skapa upplifanir fyrir öll helstu fyrirtæki og stofnanir landsins.

Hvort sem um er að ræða óvissuferð, utanlandsferð, hópefli, hvataferð, uppbyggingu á liðsanda, árshátíð, ratleik eða hverskonar viðburð, bjóðum við upp á margar skemmtilegar og vel skipulagðar lausnir.

Við notum reynslu okkar og hæfileika í að sérsmíða hvern viðburð sérstaklega. Það hefur ávallt verið okkar stefna að vera leiðandi í því sem við tökum okkur fyrir hendur og því leggjum við mikla áherslu á að gera betur í hvert sinn. Við fjárfestum bæði tíma og fjármagn í öfluga vöruþróun og hugmyndavinnu til að mæta aukinni eftirspurn og kröfum á innlendum markaði. Á hverju ári bjóðum við upp á eitthvað nýtt og skemmtilegt.

Kompaní Events snýst ekki um okkur, heldur um þig! Við leggjum mikla áherslu á að skilja tilgang verkefnisins og notum síðan reynslu okkar og hæfileika í að sérsmíða og hanna hvern viðburð með það í huga. Við leggjum allan okkar metnað í að aðstoða þig og gesti þína til að sérhver upplifun verði sem best. Við þjónustum einnig erlenda ferðamenn og nokkur þúsund ferðamenn fara í gegnum ferðasmiðju okkar á hverju ári. Við bjóðum erlendum gestum upp á skemmtilegar og sérsniðnar ferðaupplifanir á Íslandi og höfum mikinn metnað fyrir því að kynna landið vel. Ferðaþjónusta okkar er fyrir einstaklinga eða hópa af öllum stærðum og gerðum.

Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.

Hvað er í boði