Íshestar ehf.
Upplifum Ísland saman
Íshestar bjóða fjölbreyttar hestaferðir þar sem íslenski hesturinn og náttúra landsins eru í aðalhlutverki.
Úrvalið spannar allt frá styttri dagsferðum, sem henta jafnt byrjendum sem reyndari knöpum, yfir í lengri hestaferðir þar sem ferðast er um einstök svæði landsins og Ísland upplifað úr hnakknum.
Fyrir fyrirtæki og hópa bjóðum við einnig upp á sérsniðnar hvataferðir og hópefli. Þar má sameina reiðupplifun, veitingar og góða samveru ásamt upplifunum hjá völdum samstarfsaðilum.
Hvort sem þið eigið nokkrar klukkustundir eða nokkra daga – þá byrjar ævintýrið hjá Íshestum.