Fara í efni

Iceland Hunting Guide

Iceland Hunting Guide er fyrir alla sem hafa áhuga á að upplifa veiðar á Íslandi undir leiðsögn reyndra veiðimanna. Við skipuleggjum fjölbreyttar fuglaveiðiferðir, þar á meðal vatnafuglaveiðar þar sem veiddar eru gæsir og endur, rjúpnaveiðar og sjófuglaveiðar þar sem veiddar eru svartfuglategundir.

Veiðiferðirnar geta verið allt frá hálfum degi upp í nokkra daga, allt eftir óskum og þörfum hvers og eins. Lítill hópur sérfræðinga í veiðum og skotfimi tekur á móti gestum og leiðir þá í gegnum veiðiupplifunina. Allir leiðsögumenn okkar eru reyndir veiðimenn sem bjóða upp á ekta íslenska veiðiupplifun.

Iceland Hunting Guide er ferðaþjónustufyrirtæki með leyfi frá Ferðamálastofu sem sérhæfir sig í fuglaveiðum á Íslandi. Veiðitímabilið okkar stendur frá 20. ágúst til 25. apríl og nær því yfir átta mánuði ársins.

Markmið okkar er að gera ferðamönnum auðvelt að stunda veiðar á ferðalagi sínu um Ísland. Hvort sem þú vilt fara í veiðiferð í hálfan dag eða heila viku erum við þér innan handar og leiðum þig í gegnum eftirminnilega veiðiupplifun. 

Hvað er í boði