Hvammsvík
Í Hvammsvík bjóðum við upp á hús í einkaleigu þar sem þú getur verið út af fyrir þig og notið náttúrunnar í algjöru næði. Húsin eru í kyrrð Hvalfjarðarins, þar sem sjórinn, móinn og fjallasýnin skapa einstakt andrúmsloft. Hvert hús hefur verið gert upp á smekklegan hátt en hinn upprunalegi þokki þeirra heldur sér.