Fara í efni

Tjaldsvæðið Kirkjuhvammi, Hvammstanga

Hvammstangi er stærsti þéttbýlistaður í Húnaþingi vestra. Hann er tilvalinn áfangastaður ferðamanna, þar er mjög góð sundlaug,verslanir,veitingastaður,söfn,gallerí og önnur nauðsynleg þjónusta.

Frá Hvammstanga er stutt að keyra út á Vatnsnes sem hefur að geyma fjölmarga sögustaði,fallegt landslag og síðast en ekki síst selalátur í þægilegu göngufæri. 

Tjaldstæðið í Kirkjuhvammi á Hvammstanga er aðeins 6 km frá þjóðvegi 1, miðja vegu milli Reykjavíkur og Akureyrar.

Einstakt tjaldstæði í skjólgóðum hvammi fyrir ofan bæinn,með fínu þjónustuhúsi og góðri þjónustu fyrir tjald- og húsvagna.
Góðar gönguleiðir eru fyrir ofan svæðið í fallegri náttúru.

Verð 2024

Fullorðnir: 1.500 kr
Eldri borgarar: 1.300 kr
Börn yngri en 16 ára: ókeypis
Rafmagn:   1.000 kr

Hvað er í boði