Fara í efni

Hönnunarsafn Íslands

Árið 1998 gerðu menntamálaráðuneytið og Garðabær samkomulag um að reka í sameiningu íslenskt hönnunarsafn er safnaði og sýndi listiðnað. Aðdragandinn hafði verið allnokkur en rekja má þá formlegu umræðu sem hafði farið fram um nauðsyn á slíku safni aftur til ársins 1992 þegar félagið Form Ísland setti saman umræðuhóp með fulltrúum hönnuða, menntamálaráðuneytis, Listasafns Íslands, Þjóðminjasafns Íslands og Reykjavíkurborgar um slíkt safn. Í framhaldinu, eftir vinnu hópsins, var þeim tilmælum beint til menntamálaráðuneytis að skipa nefnd  er mæti með hvaða hætti stofna mætti safn er sinnti listiðnaði. Í byrjun árs 1997 var niðurstaða nefndarinnar sú að mikil þörf væri á safni er sinnti listhandverki og iðnhönnun.

Fyrst um sinn var safnið deild í Þjóðminjasafni Íslands en með nýjum samningi við menntamálaráðuneytið, sem undirritaður var í desember árið 2006, tók Garðabær við rekstri Hönnunarsafns Íslands og starfar safnið sem stofnun á vegum bæjarfélagsins. Safnið hafði til afnota lítinn sal við Garðatorg og hélt nokkrar sýningar á ári en skrifstofu og varðveislurými var að finna á öðrum stað. Árið 2009 var safninu valinn staður við Garðatorg 1 og fluttist öll starfsemi safnsins þangað þegar reglubundið sýningahald safnsins hófst í maí 2010. Í safninu starfa forstöðumaður og fulltrúi safneignar ásamt gæslu- og afgreiðslufólki.  

Hvað er í boði