Fara í efni

Ævintýrahúsið Hóll á Siglufirði

Hóll – einstök hópgisting á Siglufirði

Hóll á Siglufirði er einstakt samkomuhús og glæsilegur gististaður fyrir hópa sem vilja njóta samveru í fallegu umhverfi á Norðurlandi. Húsið rúmar allt að 35 manns og hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldusamkomur, vinaferðir, afmæli, brúðkaup, fyrirtækjaferðir og helgarfrí.

Á Hóli er öll aðstaða til að gera dvölina eftirminnilega. Þar má finna stóran heitan pott, gufubað, rúmgóð sameiginleg rými og fjölbreytta afþreyingu fyrir gesti á öllum aldri t.d. ping pong, pool píla og fleira. Aðstaðan hentar jafnt til afslöppunar sem og skemmtilegra samverustunda, hvort sem ferðin snýst um útivist, skíði, gönguferðir eða einfaldlega að njóta góðra stunda saman.

Siglufjörður er heillandi bær með einstaka náttúru, ríka sögu og fjölbreytta afþreyingu allt árið um kring. Hóll er því frábær kostur fyrir þá sem leita að stórum sumarhúsum á Norðurlandi eða rúmgóðri gistingu fyrir hópa í fallegu umhverfi.

Hóll er leigður út í heild sinni, svo hópurinn hefur húsið og aðstöðuna út af fyrir sig. Hvort sem þú ert að skipuleggja fjölskylduferð, vinahitting eða fyrirtækjaviðburð er Hóll frábær umgjörð fyrir samveru og góðar minningar.

Hvað er í boði