Go East
Go East er fjölskyldurekið ferðaþjónustufyrirtæki með aðsetur á Egilsstöðum sem býður upp á einkaleiðsögn í dagsferðum um Austurland.
Staðkunnugir leiðsögumenn okkar þekkja vegina, landslagið og sögur svæðisins og leggja áherslu á persónulega upplifun sem er sniðin að hverjum hópi.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval dagsferða til nokkurra af áhugaverðustu áfangastöðum Austurlands, þar á meðal Stuðlagils, Borgarfjarðar eystri og lundabyggðarinnar þar, Mjóafjarðar, Gufufoss, Hengifoss, Vök Baths, Austfjarða og hálendisins. Einnig er hægt að bóka sérsniðnar dagsferðir sem taka mið af áhugasviði og dagskrá hvers hóps.
Hægt er að óska eftir akstri til og frá Seyðisfirði, Egilsstöðum og öðrum stöðum á Austurlandi.