Fara í efni

Gamla Prestshúsið

Í gamla prestssetrinu sem er í eigu Minjasafnsins á Akureyri hefur verið rekin Gestastofa Laufáss frá sumrinu 2014. Þar er lögð áhersla á móttöku ferðamanna og gesta, meðal annars með fræðslu um sögu staðarins, náttúruna og nánasta umhverfi. Hægt er að fá kaffi og léttar veitingar og njóta útsýnisins eða líta í bók og blöð í bókahorninu. Þá er einnig starfrækt í Gestastofunni handverks- og minjagripaverslun þar sem gefur að líta fjölbreytt vöruúrval m.a. frá handverksfólki af svæðinu.

Hvað er í boði