Fara í efni

Menningarstofa Fjarðabyggðar

 Menningarstofa Fjarðabyggðar starfar í Fjarðabyggð og undir henni Tónlistarmiðstöð Austurlands en hún er miðstöð tónlistar á Austurlandi og er leiðandi í fræðslu og framþróun listgreinarinnar í landshlutanum.  

Menningarstofa Fjarðabyggðar var sett á laggirnar árið 2017 og hlutverk hennar er að styðja við og efla menningarstarf í Fjarðabyggð á breiðum grundvelli. Öflugt og fjölbreytt menningarlíf er grundvallarþáttur í að gera
Fjarðabyggð að góðum stað til að búa á, og þar leikur Menningarstofa lykilhlutverk.
 

Menningarstofa er vöktunaraðili menningarumhverfis í Fjarðabyggð sem felst í að greina þarfir ólíkra hópa samfélagsins og koma til móts við þarfir og langanir sem flestra. Menningarstofa starfar með fjölbreyttum aðilum í
menningar- og listalífinu og styður þá og eflir til góðra verka.
Menningarstofa leggur áherslu á að tryggja aðgengi allra íbúa svæðisins að menningu og listum, óháð búsetu, uppruna og þjóðfélagsstöðu. Menningarstofa Fjarðabyggðar er tengiliður við grasrótarsamtök á sviði menningar, svo sem áhugaleikfélög og kóra, og stuðlar að góðu aðgengi til viðburðarhalds í húsnæði á vegum sveitarfélagsins.


Menningarstofa er tengiliður leik-, grunn- og tónlistarskóla, safna og annarra stofnana sveitarfélagsins við fagaðila úr skapandi greinum. Menningarstofa vinnur markvisst að auknu aðgengi að skapandi námi og starfi í samstarfi við fræðslustjóra, íþrótta- og tómstundafulltrúa og Safnastofnun Fjarðabyggðar. Menningarstofa er vakandi fyrir því að draga svið og stofnanir að borðinu, leiða samstarf og leggja til samstarfsverkefni þar sem við á.
 

Tónlistarmiðstöð Austurlands var stofnuð 2001 og starfar samkvæmt samþykkt frá 2018 en í dag fer Menningarstofa Fjarðabyggðar fyrir starfseminni. Tónlistarmiðstöð/Menningarstofa er samstarfsaðili annarra menningarmiðstöðva á Austurlandi varðandi stefnumótun í málefnum tónlistar fyrir landshlutann og samstarfsverkefna á breiðum grunni.  

Hlutverk Tónlistarmiðstöðvar Austurlands er að: a) Standa vörð um tónlistarstarf, tónlistarfólk og tónlistarskóla. Hlúa að vaxtasprotum á sviði tónlistar, svo sem starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Austurlands. b) Vinna að þróunarstarfi og fræðslu á sviði tónlistar c) Vinna að eflingu samstarfs á sviði tónlistar og halda úti fjölbreyttum samstarfsverkefnum með stofnunum innan Austurlands, sem utan. d) Standa fyrir tónleikahaldi sem eflir menningarlæsi í samfélaginu og eykur þekkingu á fjölbreyttum straumum og stefnum í tónlist.  

Markmiðið með fræðsluverkefnum Tónlistarmiðstöðvar er að stuðla að sjálfstæði og sjálfsöryggi barna til að iðka tónlist í sínu daglega lífi, í leik og starfi. Fræðsluverkefnin eru byggð uppá mismunandi aðferðum til að miðla þessari hugmyndafræði til barna og ungmenna t.d. með fyrirlestrum, vinnustofum og viðburðum á sviði tónlistar. Lagt er upp með að börn tileinki sér aðferðir til tjáningar og miðlunar á hugmyndaheimi sínum en um leið að gefa þeim innsýn í fjölbreytt tækifæri hvað varðar nám og starf til framtíðar.

Fræðsluverkefni Tónlistarmiðstöðvar stuðla að auknu menningarlæsi barna og ungmenna, þá einkum sem snýr að tónlist en það er eitt af markmiðum Sóknaráætlunar Austurlands.  

Hvað er í boði