Fara í efni

FarNorth Hostel

FarNorth Hostel er lítið og notalegt farfuglaheimili í sjávarþorpinu Bakkafirði á Norðausturlandi. Farfuglaheimilið er til húsa í fyrrverandi skólabyggingu og býður upp á þægileg einkaherbergi, sameiginlegt eldhús og rúmgóðar setustofur.

Bakkafjörður er rólegt sjávarþorp, umkringt stórbrotinni náttúru, þar sem ferðalangar geta notið kyrrðarinnar og kynnst lífinu á afskekktari slóðum Íslands.

FarAway Café, sem er staðsett við gömlu höfnina í stuttri göngufjarlægð, þjónar sem móttaka farfuglaheimilisins og býður upp á heimagerðan mat, gott kaffi og nýbakað bakkelsi.

Hvað er í boði