Fara í efni

Drangeyjarferðir ehf.

Ferður út í Drangey frá Sauðárkróki hefjast 1. júní og eru til 20. ágúst. Förum daglega kl.10:00, og við bætum við ferðum eftir þörfum og óskum.

Í maí og eftir 20.ágúst eru ferðir eftir samkomulagi.

Sigling út í Drangey er ævintýri líkust enda er eyjan náttúruperla í miðjum Skagafirði. Eyjan er þverhníptur móbergsklettur um 180 metrar á hæð og býður því upp á frábært útsýni yfir allan fjörðinn. Fuglalíf er fjölbreytt í Drangey þótt mest beri þar á svartfuglategundum og er þar lundinn frægastur fugla.

Ferðin í Drangey tekur ca. 4 klst. með siglingu, göngu, leiðsögn, fuglaskoðun og oftar en ekki láta selir og hvalir sjá sig á leiðinni. Komdu og njóttu fallegrar náttúru og upplifðu Drangey í allri sinni dýrð.

Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.

Hvað er í boði