Fara í efni

Bókasafn Reykjanesbæjar

Bókasafn Reykjanesbæjar er staðsett við Tjarnargötu 12 þar sem Ráðhús Reykjanesbæjar er einnig til húsa.

Safnið er opið alla virka daga frá klukkan 09.00 til 18.00 og frá klukkan 11:00 til 16:00 á laugardögum yfir vetrartímann. Bókasafnið er lokað á laugardögum yfir sumarmánuðina (júní, júlí og ágúst).

Á efri hæð safnsins er að finna afgreiðslu, skáldsögur, ævisögur, barnahorn, tímarit og fleira sem kallar á meiri samskipti.
Á neðri hæð safnsins eru lestrarsalir, upplýsingaþjónusta, heimavinnuaðstaða og fleira sem krefst kyrrðar og rósemdar.
Á safninu er þráðlaust net og hægt er að komast í tölvu.


Upplýsingaþjónusta: http://sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn/thjonusta/upplysingathjonusta

Bókasafn Reykjanesbæjar er menningarmiðja bæjarins. Markmið safnsins er að veita íbúum aðgang að fjölbreyttum safnkosti og upplýsingum á mismunandi formi. Safnið stuðlar að eflingu menningar- og vísindastarfsemi, menntunar, símenntunar, atvinnulífs, íslenskrar tungu, ánægjulesturs og upplýsingalæsis. Bókasafnið á að vera hlutlaus staður, „þriðji staðurinn“ á eftir heimili, vinnu eða skóla.
Öll börn í Reykjanesbæ fá frítt lánþegaskírteini til 18 ára aldurs.

Starfsfólk Bókasafns Reykjanesbæjar stendur fyrir viðburðum af ýmsu tagi og má nefna að á safninu er leshringur, skapandi samvera þar sem lögð er áhersla á margs konar handavinnu, notalegar samverustundir fyrir fjölskyldur með ung börn þar sem lesið er úr barnabókum.  Heimskonur hittast einnig einu sinni í mánuði en þá koma saman konur af ólíkum uppruna og ræða málin.
Í Bókasafni Reykjanesbæjar er vilji starfsfólks sá að hér sé einskonar gátt inn í samfélagið eða staður sem er eins og vin í eyðimörkinni þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Hvað er í boði