Fara í efni

Bjarmaland Cottages

Í Bjarmalandi í Laugarási bjóðum við gistingu í tveimur fallegum og vel hönnuðum smáhýsum. Hvort hús hentar fyrir tvo gesti og er með þægilegu tvíbreiðu rúmi og góðri eldunaraðstöðu. Laugarás í Bláskógabyggð er lítið þéttbýli sem hefur byggst upp í kringum læknisþjónustu og garðyrkju. Hér er gnægð af heitu vatni og í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð er nýopnað baðlón, Laugarás Lagoon, ásamt hágæða veitingastaðnum Ylju. Í Bjarmalandi er einnig opið myndlistagallerí þar sem til sýnis og sölu eru verk eftir myndlistarmanninn Úlfar Örn, ásamt völdum minjagripum og öðrum varningi til að minna á ferðalagið. Við erum vel staðsett fyrir þá sem vilja skoða Gullna hringinn. Í næsta nágrenni eru einnig Skálholt og Reykholt þar sem Friðheimar eru staðsettir.

Hvað er í boði