Fara í efni

Ásvallalaug

Sundmiðstöðin er ein sú stærsta á landinu eða um 6.000 m². Þar er einnig Reebok með heilsurækt í 600 m² rými, Ásmegin sjúkraþjálfun svo og félagsaðstaða Sundfélags Hafnarfjarðar og Íþróttafélagsins Fjarðar en þessi félög eru með mjög umfangsmikla starfssemi í lauginni.

Innanhúss er 50 metra sundlaug sem að jafnaði er skipt með brú þannig að helmingur laugarinnar er 25m að lengd og hinn helmingurinn er 50 m.  Við 50 m laugina er lyfta fyrir fólk í hjólastólum til að komast ofan í hana.   Í sundlauginni er jafnframt 17metra barnalaug (90-110cm djúp) og 10metra vaðlaug fyrir yngstu kynslóðina með tilheyrandi leikföngum.  Hitastig barnalauganna er um 32°C á meðan hitastig sundlaugar er 28°C. Hitastig inni í salnum er ávallt um 30°.   Innanhúss eru einnig vinsæl vatnsrennibraut, þrír heitir pottar og eimbað.  Utandyra eru tveir heitir pottar og mjög góð sólbaðsaðstaða.   

Opnunartími
Mánud-fimmtud. 6:30-22:00
Föstud. 6.30 – 20.00
Laugardaga 08:00-18:00
Sunnudaga 08:00-17:00

Hvað er í boði