Fara í efni

Áskot

Áskot - Vel í sveit sett.

Í aðeins klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík finnur þú sveitasæluna Áskot. Í Áskoti eru sex smáhýsi fyrir ferðamenn á friðsælum, fjölskyldureknum hestabúgarði. Þau voru byggð á staðnum og hönnuð í anda 19. aldar smáhýsa sem finna má víða um land, eins og til dæmis í Hafnarfirði og á Stokkseyri. Hvert smáhýsi er 32 m², sérstaklega hannað fyrir tvo en getur auðveldlega hýst allt að þrjá fullorðna. Áskot er fjarri umferð og á kjörnum stað til að upplifa Suðurland, og er fullkomin bækistöð fyrir nokkurra daga dvöl þegar skoða á Gullna hringinn, fossa, jökla og svartar sandstrendur.

Einstök upplifun
Í Áskoti fer fram þjálfun hesta með sundi í sérstakri innilaug, sem er sú eina sinnar tegundar á landinu. Sundþjálfunin fer fram á veturna og fram á sumar ár hvert. Í Áskoti er möguleiki á að hitta hesta og jafnvel sjá hestasund.

Aðbúnaður og þægindi
• Fullbúið lítið eldhús til að útbúa einfaldar máltíðir.
• Uppþvottavél ásamt sambyggðri þvottavél og þurrkara er í hverju húsi.
• Nútímalegt baðherbergi með rúmgóðri sturtu.
• Stórt hjónarúm („king-size“) með hágæða rúmfötum og rúmgóður svefnsófi.
• Einkabílastæði og hleðslustöð fyrir rafbíla við hvert smáhýsi.

Gildin okkar
Við trúum á rólega ferðamennsku („slow travel“): að taka sér tíma til að slaka á, kynnast nærsamfélaginu og njóta árstíðanna í stað þess að þjóta í gegnum gátlista. Í rekstri okkar leggjum við mikla áherslu á að lágmarka umhverfisspor okkar, svo náttúran og umhverfið haldist ósnortið fyrir komandi kynslóðir.

Hvað er í boði