Fara í efni

Apotek Restaurant

Apotek Restaurant er spennandi veitingahús staðsett á einu fallegasta horni Reykjavíkur í Austurstræti 16. Veitingahúsið er “causal/smart” staður þar sem boðið er upp á ljúffengar veitingar í líflegri stemningu og flottu umhverfi. Matseðillinn er skemmtileg blanda af íslensku og evrópsku eldhúsi með funheitu argentísku grilli. Fjöldi smárétta er á matseðlinum sem mælt er sérstaklega með að gestir smakki og njóti saman. Á Apotek restaurant er lifandi kokteilbar þar sem verðlaunaðir „apótekarar“ hrista saman spennandi kokteila – við allra hæfi – örvandi, róandi og jafnvel verkjastillandi.

Hönnun veitingastaðarins var í höndum Leifs Welding & Brynhildar Guðlaugsdóttur. Útgangspunkturinn var að halda heiðri hússins á lofti og gera byggingunni og sögu hennar hátt undir höfði. En á sama tíma að skapa nútímalegt, skemmtilegt og afslappað andrúmsloft. Langstærstur hluti húsgagna og innréttinga voru einnig hannaðir af tvíeykinu og smíðaðir á Íslandi.

 

Kíktu við í skemmtilegasta Apotek bæjarins.

 



Hvað er í boði