Fara í efni

Tjaldsvæðið Á á Skarðsströnd

Eldra tjaldsvæðið er staðsett á fallegum stað í þéttum birkiskógi nálægt Ártindum sem er falleg klettamyndun. Nýtt tjaldsvæði hefur verið tekið í notkun sem er á heimatúni við bóndabæinn Á.

Við eldra tjaldsvæði er klósettaðstaða og vaskar en einungis kalt vatn í boði. Á heimatúni bóndabæjarins Á er búið að endurgera mjólkurhúsið sem hreinlætisaðstöðu með 3 klósettum og heitu og köldu vatni. Rafmagn er í boði á túninu og 24 innstungur eru þar í tveimur kössum.  Þar er aðstaða til að elda og borða innandyra en þar er eldavél og örbylgjuofn.

Fallegur staður við sunnanverðan Breiðafjörð þar sem hægt er að njóta fallegra gönguleiða ásamt öllu því nátturulífi sem Breiðafjörður hefur uppá að bjóða.

 

 

Hvað er í boði