Fara í efni

Skálasnagaviti á Snæfellsnesi

Snæfellsbær

Skálasnaga­viti á Snæfellsnesi vís­ar sjófar­end­um leið og laðar til sín fjölda ferðamanna, bæði inn­lenda og er­lenda.

Vitinn stendur á Skálasnaga á Saxhólsbjargi en bjargið nefnist Svörtuloft séð af sjó. Frá landi nefnist syðri hluti bjargsins Saxhólsbjarg en Nesbjarg norðar.

Árið 1914 var reistur 10 m hár járngrindarviti með 2,3, m ljóshúsi yst á Skálasnaga á Svörtuloftum vestast á Snæfellsnesi.  Thorvald Krabbe teiknaði mannvirkið.

Vitinn entist í 17 ár þá var hann orðinn mjög ryðbrunninn og þótti ekki lengur treystandi.

Árið 1931 var tekinn í notkun nýr viti sá var steinsteyptur, ferstrendur 9,5 m hár. Benedikt Jónsson verkfræðingur hannaði vitann.

Upplýsingar eru fengnar úr bókinni Vitar á Íslandi, útgefandi er Siglingastofnun Íslands árið 2002.