Fara í efni

Saxhóll á Snæfellsnesi

Hellissandur

Saxhóll á Snæfellsnesi er 40 metra hár, formfagur gígur innan marka Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls. Gígurinn hefur verið vinsæll til uppgöngu enda staðsettur nálægt veginum og aðgengi að honum gott. Tröppur hafa verið lagðar upp á toppinn þannig að auðvelt er að ganga upp og njóti útsýnisins. Bílastæði eru við gíginn.  

Skemmdir voru unnar á hólnum fyrr á tíð er efni var tekið úr honum til ofaníburðar.  

Hólarnir eru í raun tveir, Stóri-Saxhóll og Litli-Saxhóll. Þriðji hóllinn er úti í hrauninu suðvestur af bæjarrústunum og heitir hann Sauðhóll. Voru þar beitarhús og er hellir austan í hólnum. Saxhóll var bær sem farinn er í eyði fyrir löngu. Þar var kirkja nær allan tíma forns siðar í landinu.

Tröppustígurin upp í gíginn var tilnefndur til fernra verðlauna 2017-2018; Menningarverðlaun DV, Nordic Architecture Fair Award, Hönnunarverðlauna Íslands og Rosa Barba International Landscape Prize í Barcelona en þau verðlaun hlaut hann í september 2018.