Fara í efni

Viti - Öndverðarnesviti á Snæfellsnesi

Hellissandur

Fyrsti vitinn á Öndverðanesi á Snæfellsnesi var reistur árið 1909. Hann var stólpaviti en árið 1914 var reist 2,5 metra há timburklædd járngrind með 2,4 m háu áttstrendu ljóshúsi.

Steinsteyptur viti var síðan byggður að Öndverðarnesi árið 1973. Hann er ferstrendur 3,5 metra hár með 3 m háu áttstrendu ljóshúsi. Vitinn er sömu gerðar og Surtseyjarviti sem reistur var sama ár. Aðalsteinn Júlíusson verkfræðingur hannaði vitann.

Upplýsingar eru fengnar úr bókinni Vitar á Íslandi, útgefandi Siglingastofnun Íslands, 2002.