Fara í efni

Loðmundarfjörður

Loðmundarfjörður er fallegur eyðifjörður norðan við Seyðisfjörð. Líklega var byggð í firðinum allt frá landnámi og vitað er að 143 einstaklingar bjuggu þar árið 1860 en þeim fór fækkandi eftir það. Loðmundarfjörður fór í eyði árið 1973. Enn má sjá heilmikla minjar um byggð á svæðinu og enn stendur lítil kirkja við Klyppstað.

Í dag er Loðmundarfjörður vinsæll viðkomustaður göngufólks enda er fjörðurinn hluti af Víknaslóðum. Hægt er að keyra til Loðmundarfjarðar seinni hluta sumars, en nauðsynlegt er að vera á fjórhjóladrifnum bíl.