Fara í efni

Ásavegur - þjóðleið

Selfoss

Ásavegur er hin forna þjóðleið fólks um Suðurland. Liggur leið þessi um þveran Flóann og má finna miklar traðir á þessum slóðum sem til marks eru um þá miklu umferð sem hefur verið um þennan veg á liðnum öldum. Þarna lá leið uppsveitarmanna og þeirra sem komu austan að um ferjustaðinn hjá Króki í Holtum og hjá Egilsstöðum, niður að verslunarstaðunum Eyrabakka. Einnig lá þar leið vermanna er komu norðan Sprengisands til sjósóknar á suðurströndinni og lágsveitabænda með rekstur til og frá afrétti, svo dæmi séu nefnd. Þessa leið fóru Skeiða- og Hreppamenn, Rangæingar, sem fóru yfir Þjórsá sem og Skaftfellingar sem fóru Fjallabaksveg nyrðri. Merkt gönguleið er á milli Orrustudals og Hnauss (um 6 km ganga). Orrustudalur og Skotmannshóll er sögusvið Flóamannasögu. Í Orrustudal voru háðar tvær miklar orrustur eftir landnám. Féll m.a. Hásteinn Atlason í hinni fyrri, en Önundur bíldur í þeirri síðari. Á Skotmannshóli stóð Þormóður Þjóstarsson er hann skaut hinu fræga bogskoti sem skar úr um lögmæti vígs Arnars í Vælugerði.

Á þessari leið er hæsti punktur Flóahrepps en þar má sjá stórfenglegt útsýni í allar áttir.