Fara í efni

Skeiðarársandur

Öræfi

Skeiðarársandur er stórt svæði þakið svörtum sandi sem nær frá Skeiðarárjökli og niður að sjó.

Sandurinn þekur 1300 ferkílómetra svæði og myndaðist þegar jökulár í nágrenninu báru jarðveg að sjónum. Árnar bera með sér jarðveg sem komst upp á yfirborðið við jökulhlaup frá Vatnajökli. Við jökulinn er jarðvegurinn malarborin og jafnvel grýttur, en þegar farið er nær sjónum er hann orðinn að sandi og leir. Forðum var lítið um gróður við Skeiðarársand en á síðasta áratug hafa birkitré sprottið á sandinum og er skógurinn staðsettur miðsvæðis þar sem trén vaxa og dafna. Á Skeiðarársandi er einnig stórt varpsvæði skúmsins. 

Skeiðarárbrú
Brúin yfir Skeiðará á Skeiðarársandi heitir Skeiðarárbrú. Vígsla hennar árið 1974 markaði opnun hringvegsins í kringum Ísland. Skeiðarárbrú er einbreiðbrú gerð úr sérstaklega unnum stál burðargrindum. Árið 1996 varð eldgos í Grímsvötnum í Skeiðarárjökli sem olli miklum flóðum og bráðnun jökulsins. Miklar skemmdir urðu á brúnni vegna flóðanna og ísjaka á stærð við einbýlishús sem skullu á brúnni. Í dag eru einu ummerki upprunalegu brúnnar tveir beyglaðir stálbitar sem sjá má frá nýja veginum. Þeir mynda einstakan minnisvarða um fallegu en öflugu náttúruna sem einkennir Íslenskt landslag. Ný brú hefur verið reist vegna breytinga á vatnsfalli undan jöklinum. Áin sem rennur undir nýju brúna er Morsá.