Fara í efni

Héraðssandur

Egilsstaðir

Héraðssandur er víðáttumikil svört sandströnd við Héraðsflóa, norðaustur af Egilsstöðum. Hér mætast ár, svartir sandar og opið haf í stórbrotnu landslagi sem einkennist af víðáttu og fjölbreyttu fuglalífi.

Hægt er að upplifa Héraðssand og strandlengju Héraðsflóa á ýmsa vegu. Nokkrar gönguleiðir liggja um svæðið og bjóða hver um sig upp á ólíka sýn á náttúruna. Gönguleiðin að Stapavík fylgir Selfljóti í átt að ströndinni og hinni sögufrægu Stapavík. Gönguleiðin að Landsenda liggur um litríkt landslag austan Héraðsflóa og að tilkomumiklum sjávarhömrum. Norðar er Húsey , þar sem hægt er að ganga um einstakt landslag við árósa, svarta sanda og ströndina og njóta fjölbreytts fuglalífs.

Það er líka hægt að njóta útsýnis yfir Héraðssand án þess að ganga niður að ströndinni. Á leiðinni yfir Hellisheiði eystri er útsýnisstaður með víðáttumiklu útsýni yfir Héraðssand og Héraðsflóa. Annað fallegt sjónarhorn fæst við þjónustuhúsið við Stórurð , á leiðinni til Borgarfjarðar eystri.

Útsýnisstaðirnir eru tilvaldir fyrir ferðafólk sem vill staldra við, njóta víðáttunnar og fá góða yfirsýn yfir eitt sérstæðasta strandlandslag Austurlands.