Fara í efni

Askja

Askja er eldstöð, staðsett á hálendinu og er því aðeins aðgengileg yfir sumarmánuðina.  Í Öskju er Öskjuvatn en það er dýpsta stöðuvatn á Íslandi og við hliðina á Öskjuvatni er gígurinn Víti. Vatnið í gígnum er enn um 22 gráður og er vinsælt að baða sig þar, enda mikil upplifun. Náttúran er stórbrotin á þessum afskekta stað uppá hálendi Íslands. 
Friðlýst 1978. Askja tilheyrir Vatnajökulsþjóðgarði.
Vegur F88 liggur frá þjóðvegi 1 um Herðubreiðarlindir að Drekagili. Á leiðinni eru tvö vöð sem geta verið ófær minni jeppum. Frá Drekagili liggur vegur F894 að bílastæði nærri Öskju.