Fara í efni

Aldeyjarfoss

Aldeyjarfoss er einn fegursti foss landsins og sannkölluð náttúruperla í efri hluta Bárðardals. Fossinn fellur í Skjálfandafljóti og er þekktur fyrir stórbrotnar stuðlabergsmyndanir sem umlykja fossinn og mynda einstaka umgjörð.

Mikill litamunur milli dökks stuðlabergsins og hvíta jökulvatnsins skapar stórfenglegt landslag. Á svæðinu má einnig sjá skessukatla sem hafa mótast af vatnsaflinu í gegnum aldirnar. 

Vegur liggur nær alla leið að fossinum vestan Skjálfandafljóts og þaðan er stutt ganga að útsýnissvæðinu.