Hrísey
Akureyri
Hrísey er næststærsta eyja landsins á eftir Heimaey og er gjarnan kölluð Perla Eyjafjarðar. Eyjan er vel gróin, rís hæst í 110 metra yfir sjávarmál og býður upp á fallegt útsýni yfir Eyjafjörð.
Hrísey er þekkt fyrir friðsælt umhverfi, fjölbreytt fuglalíf og góðar gönguleiðir. Syðst á eyjunni er lítið þorp þar sem flestir íbúarnir búa og þar er meðal annars að finna sundlaug og þjónustu fyrir gesti.
Ferjan Sævar gengur á milli Hríseyjar og Árskógssands nokkrum sinnum á dag og tekur ferðin um 15 mínútur hvora leið.