Fara í efni

Litlanesfoss

Egilsstaðir

Litlanesfoss er staðsettur um það bil hálfa leið upp hlíðina að Hengifossi. Fossinn er um 25–30 metra hár og umkringdur einstaklega fallegu stuðlabergi með óvenjuháum basaltstuðlum. Stuðlaberginu hefur verið líkt við háan og breiðan kór þar sem beinir stuðlarnir minna á pípur í orgeli. Neðan við Litlanesfoss má einnig sjá setlög sem setja svip sinn á landslagið.