Fara í efni

Baugur Bjólfs

Seyðisfjörður

Hátt yfir Seyðisfirði, þar sem sagan segir að landnámsmaðurinn Bjólfur hvíli, liggur Baugur Bjólfs. Hringlaga útsýnispallur sem sækir innblástur í sögu, náttúru og landslag staðarins. Baugurinn vísar til silfurhrings Bjólfs og tengir þannig fortíðina við nútímalega og látlausa hönnun.

Frá pallinum opnast 360° útsýni yfir Seyðisfjörð, bæinn, fjöllin og dalina. Hluti baugsins teygir sig út yfir fjallshlíðina og skapar tilfinningu fyrir því að svífa yfir landslaginu. Hér fær náttúran að njóta sín, staður til að ganga hringinn, setjast niður, staldra við og horfa langt út fjörðinn. 

Aðgengi: Malarvegur liggur að aðalbílastæðinu og mælt er með fjórhjóladrifnum bíl (4x4). Frá bílastæðinu er um 15 mínútna ganga að útsýnispallinum (1,2 km). Gestir með hreyfihömlun geta ekið alla leið að útsýnispallinum, þar sem er sérmerkt aðgengilegt bílastæði. Mikilvægt er að kanna færð og veðurskilyrði áður en lagt er af stað, þar sem aðstæður á fjallinu geta breyst hratt.