Strandblak á íþróttasvæðinu á Þingeyri
Af hverju ekki að nota sumarveðrið og skella sér í strandblak á Þingeyri?
Á íþróttasvæðinu eru góðir strandblaksvellir og ef ykkur vantar græjur til afnota er hægt að nálgast þær í sundlauginni á Þingeyri, sem er við hliðina á völlunum.
Alla föstudaga á milli kl. 16-18. Einnig er hægt að fá afnot af völlunum á öðrum tímum - heyrið í móttökunni í sundlauginni til að ræða frekar.
Sjáumst í sólinni í sumar!