Fara í efni

Ögurhátíð

Til baka í viðburði
Hvenær
19.-21. júlí
Hvar
Ögur, Súðavíkurhreppur, Iceland
Klukkan
12:00-03:00

Ögurhátíð

Ögurhátíðin verður haldin helgina 19. - 21. júlí í Ögri við Ísafjarðardjúp. Dagskráin er fjölbreytt og hefst með skötuveislu í hádeginu á föstudeginum, síðdegis er Happy Hour og Pub Quiz og um kvöldið brekkusöngur við bálköst. Á laugardagsmorgun er söguganga og að henni lokinni messa í Ögurkirkju. Beerpongmót fer fram föstudag og laugardag. Á laugardagskvöldið er hið fræga Ögurball þar sem hljómsveitin Fagranes leikur fyrir dansi fram á morgun.

Innifalið í miðaverði (8000 kr) er tjaldsvæði, rabarbaragrautur og aðgangur á ballið. Það er 18 ára aldurstakmark inn á svæðið og miðast við afmælisdag.

8000

Aðrir viðburðir