Fara í efni

Ögurball 2021

Til baka í viðburði
Hvenær
16.-18. júlí
Hvar
Ögur
Klukkan
20:00-23:00

Ögurball 2021

Hið víðfræga Ögurball verður haldið 17. júlí næstkomandi
Ögurhátíðin byrjar á föstudeginum 16. júlí og er pökkuð dagskrá fram á sunnudag.
„Einu sinni mætt getur ekki hætt“.
Unnendur sveitaballa bíða í ofvæni eftir einu vinsælasta og elsta sveitaballi Vestfjarða, Ögurballinu fræga en það fer fram laugardagskvöldið 17. Júlí
Rómantíkin, gleðin og sveitaballasjarminn sem svífur yfir Ögurballinu er löngu orðin landsfrægt, dansgólfið dúar þegar það fyllist og rababaragrautur með rjóma sem er borinn fram fyrir ballgesti í danspásum. Ein af hefðunum sem Ögursystkinin halda fast í er hinn margumtaliði rababaragrautur með rjóma.
Rababaragrauturinn hefur ávallt verið hluti af ballinu en fólk sem kom ýmist siglandi, ríðandi eða gangandi á ballið fékk rababaragraut til að fá næga orku til að koma sér heim eftir ballið.
Stuðbandið Halli og Þórunn sjá um að skemmta fólki á ballinu. „Þau hafa spilað þarna síðan við tókum við þessu og eru æviráðin. “Þau taka þó pásu og það er misjafnt hver skemmtir í pásum.“
 
Allt innifalið í tjaldsvæðagjaldinu. Þrír dagar af skemmtilegum viðburðum.

Aðrir viðburðir