Fara í efni

Moses Hightower á Vagninum

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 15 júlí
Hvar
Vagninn Flateyri
Klukkan
21:00

Moses Hightower á Vagninum

Sem tónleikaband eru Moses Hightower þekktir fyrir vingjarnlega nærveru og metnaðarfullan flutning. Hljómsveitin gaf út sína fjórðu plötu, Lyftutónlist, síðastliðið haust, og fyrr í sumar fagnaði hún því að 11 ár eru liðin frá útgáfu frumburðarins Búum til börn.

Þeir félagar hafa því úr vænum sarpi laga að moða, og lofa notalegri kvöldstund á Vagninum þann 15. júlí. 

Athugið að miðaverð er 3.000 kr í forsölu en 3.500 kr við hurð.

Hægt kaupa miða hér.

3.000 kr.

Aðrir viðburðir