Fara í efni

Hátíð fer í hönd í Ísafjarðarkirkju

Til baka í viðburði
Hvenær
sunnudagur, 12 desember
Hvar
Ísafjarðarkirkja
Klukkan
17:00-19:00

Hátíð fer í hönd í Ísafjarðarkirkju

Einvalalið vestfirsks tónlistarfólks hefur nú tekið höndum saman og mun það bjóða upp á jólatónleika á Hólmavík, Tálknafirði og Ísafirði dagana 10.-12. desember. Hópurinn hefur nokkrum sinnum áður sungið jólin í hjörtu Vestfirðinga við góðar undirtektir. Hann samanstendur af Dagnýju Hermannsdóttur, Jóni Hallfreð Engilbertssyni, Pétri Erni Svavarssyni, Stefáni Jónssyni og Svanhildi Garðarsdóttur. Auk þeirra mun sópransöngkonan Sigrún Pálmadóttir koma fram með hópnum á Ísafirði. 

Tónleikarnir í Ísafjarðarkirkju verða sunnudaginn 12. desember kl. 17. Boðið verður upp á hraðpróf fyrir tónleika. 

Miðasala fer fram á tix.is: https://tix.is/is/search/?k=h%C3%A1t%C3%AD%C3%B0%20fer%20%C3%AD%20h%C3%B6nd 

4900/2500

Aðrir viðburðir