Fara í efni

Gísli á Uppsölum

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 9 júlí
Hvar
Haukadalur
Klukkan
20:00-21:00

Gísli á Uppsölum

Gísli á Uppsölum snýr aftur í Haukadal í sumar. Þessi ástsæla sýning var á fjölunum fyrir tveimur árum og fékk einstaklega góðar viðtökur. Leikurinn verður nú sýndur að nýju í minnsta atvinnuleikhúsi landsins í Haukadal Dýrafirði, þar sem engin býr.

Gísli á Uppsölum er einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins. Einn stærsti viðburður íslenskrar sjónvarpssögu er Stiklu þáttur Ómars Ragnarssonar um einbúann Gísla Oktavíus Gíslason. Enn er Gísli landanum kær og hugleikinn. Hér er á ferðinni áhrifamikil sýning sem hefur hrifið áhorfendur líkt og saga söguhetjunnar.

Leikari: Elfar Logi Hannesson

Höfundar: Elfar Logi Hannesson, Þröstur Leó Gunnarsson

Dramatúrg: Símon Birgisson

Tónlist: Svavar Knútur

Lýsing: Magnús Arnar Sigurðsson

Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson

3800

Aðrir viðburðir