Fara í efni

Villibráðarhlaðborð að hætti meistaranna

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 3 október
Hvar
Vogur Country Lodge, Búdardalur
Klukkan

Villibráðarhlaðborð að hætti meistaranna

Landsliðskokkarnir, Snorri Viktor Gylfason, Björn Bragi Bragason og Garðar Aron Guðbrandsson matreiðslumeistari, ætla að standa fyrir villibráðarhlaðborði á Vogi sveitasetri i á Fellströnd, laugardaginn 3. október nk.
Þessir margrómuðu snillingar úr bransanum ætl að töfra fram margvíslega veislurétti matreidda úr íslenskri villibráð eins og þeim einum er lagið.
 
Boðið verður upp á heita og kalda rétti af villibráðarhlaðborði, ásamt glæsilegu úrvali eftirrétta.
 
Kvöldið hefst á fordrykk kl. 18:00 og byrjar borðhald kl 19:00.
 
Ljúfur lifandi tónlistarflutningur í boði Ivu meðan gestir gæða sér á dýrindis villibráð.
 
Verð er 12.900 krónur á mann – borðapantanir í síma 894 4396 og á netfangið vogur@vogur.org.

Aðrir viðburðir