Svavar Knútur í Vatnasafni
Svavar Knútur heldur tónleika á Vatnasafninu í Stykkishólmi 25. júní. Á dagskrá verða lög úr ranni söngvaskáldsins auk þess sem Svavar mun einnig flytja nokkur af sínum eftirlætis þjóðlögum og sígildum sönglögum, hverra orðstír er mikilvægt að halda á lofti og halda lifandi í samfélagsminni.