Fara í efni

Perlað af Krafti í Grundarfirði

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 29 ágúst
Hvar
Grundargata 35, Grundarfjörður
Klukkan

Perlað af Krafti í Grundarfirði

Kraftur leggur leið sína vestur og perlar með Grundfirðingum og nágrenni laugardaginn 29.ágúst kl. 13 – 16 í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði.

Með því að taka þátt í viðburðinum eru þið að hjálpa okkur að standa við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þess þar sem armböndin eru seld til styrkar félaginu.

Armböndin sem um ræðir eru í sannkölluðum norðurljósalitum og með áletruninni „Lífið er núna“. Armböndin eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum Grundfirðinga og nærbyggð að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Aðrir viðburðir