Fara í efni

Laugavegshlaupið 2022

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 16 júlí
Hvar
Laugavegur
Klukkan
10:00-19:00

Laugavegshlaupið 2022

Laugavegshlaupið er 55 km (53 km) langt utanvegahlaup sem haldið verður í 26. sinn þann 16. júlí 2022. Skráningu í hlaupið er lokið og er uppselt.

Hlaupið er fyrir mjög vana hlaupara 18 ára og eldri en enginn ætti að skrá sig fyrr en hann er búinn að kynna sér vel skilyrði fyrir þátttöku.

Laugavegurinn tengir saman Landmannalaugar og Þórsmörk á sunnanverðu hálendi Íslands, tvær náttúruperlur. Staðsetningin gerir það að verkum að Laugavegurinn er einungis þjónustaður í nokkrar vikur á ári.

Í hugum margra hlaupara er Laugavegshlaupið skemmtilegasta hlaupið á Íslandi. Á þessari krefjandi leið verða hlauparar vitni að ótrúlegri náttúrufegurð. Göngugarpar eru venjulega 4 daga á leið sinni um Laugaveginn. Undirlendið er fjölbreytt þar sem hlaupið er á sandi og möl, í grasi og snjó, á ís, yfir ár og læki.

Nánari upplýsingar á vef hlaupsins.

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll