Gönguferð í Hrunamannahreppi (Fosslækur-Ábóti-Svínárnes) Dagsganga
Þetta er dagsganga, 15-18 km. Ekið er inn í Fosslæk þar sem gangan hefst. Gengið er í Ábótaver og að fossinum Ábóta í Hvítá en hann fellur í gljúfri sunnan undir Bláfelli. Þaðan verður gengið í Svínárnes. Gönguleið er mikið til á grónu landi en gera má ráð fyrir að þurfa vaða ár og sprænur. Gangan er hugsuð sem náttúruskoðun og mun Sigurður H. Magnússon á Högnastöðum fræða göngufólk um gróðurfar og staðhætti en hann hefur stundað gróðurrannsóknir á afréttinum um árabil. Ferðin er í samstarfi við Landgræðslufélag Hrunamanna. Athugið að það þarf að panta í þessa ferð í síma 6923882/6995178. Gera þarf ráð fyrir einhverjum kostnaði vegna aksturs sem verður auglýstur þegar nær dregur.
frítt (Gera má ráð fyrir einhverjum kostnaði vegna akstur)