Fara í efni

Englar og menn í Strandarkirkju

Til baka í viðburði
Hvenær
19.-24. júní
Hvar
Klukkan
16:00

Englar og menn í Strandarkirkju

Tónlistarhátíðin Englar og menn í Strandarkirkju hefst á sunnudaginn kemur, 19. júní með tónleikum kl. 16 (athugið breyttan tíma).

Hátíðin er nú haldin í tíunda sinn og stendur yfir til 24. júlí en fresta þurfti tvennum tónleikum á síðasta sumri vegna Covid sem bætast nú við hátíðina í ár. Á tónleikunum á sunnudag koma
fram þau Sigríður Aðalsteinsdóttir söngkona, Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari, Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari og Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari.

Yfirskrift tónleikanna er ,,Í sjöunda himni“ en þau munu flytja fjölbreytta og stórskemmtilega
dagskrá eftir íslenska og erlenda höfunda. Sunnudaginn 26. júní verður Tónlistarmessa þar sem sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar en tónlistina annast Björg Þórhallsdóttir sópran, Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgel og harmóníum og Matthías Nardeau á óbó.
Í júlímánuði verða svo fjölbreyttir og spennandi tónleikar á sunnudögum kl. 14 frá 3. -24. júlí.


Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er sem fyrr Björg Þórhallsdóttir og aðgangseyrir er kr. 3.500.
Tónlistarhátíðin er styrkt af Samtökum sunnlennskra sveitarfélaga og Tónlistarsjóði

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll